Halla Hrund
Það sem ég elska við Ísland — Halla Hrund
Halla Hrund Logadóttir

Halla Hrund Logadóttir

Halla Hrund Logadóttir er stjórnmálafræðingur og alþjóðlegur leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar og orkumála. Hún hefur gegnt margvíslegum hlutverkum á alþjóðavettvangi og á Íslandi. Í dag á hún sæti á Alþingi Íslendinga.

Halla Hrund var orkumálastjóri Íslands áður en hún tók sæti á Alþingi. Hún er jafnframt meðstofnandi og fyrrum stjórnandi Arctic Initiative við Harvard Kennedy School. Hún kennir málefni norðurslóða við Harvard og hefur unnið að rannsóknum á orkuskiptum og loftslagsbreytingum.

Hún er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard Kennedy School og MALD meistaragráðu frá Fletcher School of Law of Diplomacy við Tufts Háskóla í Bandaríkjunum. Hún er einnig með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur lagt stund á nám um hríð við London School of Economics.

Árið 2024 bauð Halla Hrund sig fram til forseta Íslands með framtíðarsýn sem byggir á samvinnu, náttúruvernd, auðlindum, menningu, hugviti og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum. Þeirri sýn talar hún enn fyrir alla daga í leik og starfi, sem þingmaður og í ólíkum verkefnum hversdagsins.